þriðjudagur, ágúst 12, 2008

miðvikudagur, apríl 23, 2008

Dagur whatever



Mér líður óhreinni, og ég þarf varla að minnast á að ég segi hér með upp íslenskum ríkisborgararétti mínum.
Ég er ekki enn komin með leiðbeinanda og skólinn gefur mér engin svör, þess vegna eyddi í ég gærdeginum í sólbað, jarðaber og mojito. Ég hef engan rétt til að kvarta.

föstudagur, apríl 18, 2008

Enn án leiðbeinanda. Veit ekkert í minn haus. Og með ljóta klippingu í þokkabót. Þar sem ég er í vondu skapi get ég alveg eins eyðilegt dag einhvers annars: Einhver af aðalpersónunum (samt engin af fjórum aðal) deyr í Sex and the City myndinni.

mánudagur, apríl 14, 2008

Dagur 30

Nú spyr einhver:"Hvað er gangi? Fórstu í partí með Amy Winehouse og drapst í viku?" Nei, ekki er það svo gott, ég var í Póllandi og sú vika telst ekki með í ritgerðarskrifum.
Pólland var æði, lærði margt og mikið um Forum Theater og kynntist skemmtilegu fólki frá allskonar löndum. Varsjá, á hinn bóginn, sá ég ekki nema í mýflugumynd í eins og hálfstíma skokktúr með varsjáingi. Borgin er bæði ljót (sovétríkjaarkítektúr, skítug, mengun) og falleg (gamli bærinn). Við fórum einu sinni á galeiðuna í Varsjá, komust ekki inn á gaystaðinn sem við ætluðum að fara, en fórum á annan stað og guð minn góður hvað er skrítið að það megi reykja inni á stöðum. Er í alvörunni ekki liðið ár síðan reykingabannið kom? Bjórinn á barnum kostaði eitthvað í kringum tvöhundruð kallinn. Arna kom til mín daginn áður en við flugum til Póllands og ég gerði miskunnarlaust grín að hóstanum hennar því ég er ljót á sálinni. Auðvitað hefndi karmað sín og ég varð lasin og er núna með sama hósta og hún var með. Þar sem við vorum mestan tímann öll í einu herbergi og rugluðumst á vatnsflöskum hægri vinstri er kvefið hennar Örnu komið út um alla Evrópu núna.

Nú er ég komin í raunveruleikann aftur. Leiðbeinandinn minn er komin í óákveðið langt (með áherslu á langt) sjúkraleyfi og ég er þess vegna í limbói. Það að leiðbeinandinn er í sjúkraleyfi er víst voða mikið mál, og ekki bara fyrir mig heldur alla aðra sem hún er að leiðbeina. Ég reyni að láta það ekki á mig fá og held bara áfram að skrifa, svo kemur í ljós hvort að ég er gjörsamlega að steypa, í versta falli ver ég ritgerðina í haust.
Fór í ID korts leiðangur í dag, þar sem bankinn sagði við mig að ég þyrfti slíkt kort til að fá bankareikning (sem ég þarf þar sem ég er vinnandi kona). Var með öll gögn sem ég þurfti; passa, bostadbevis og þvottekta Svía til að sanna að ég er ég.
Eftir smá "Astrix og þrautirnar tólf"-lega skriffinsku var ég komin með bankareikning, og sænska vinkona mín með ID kort. Good enough for me.
"Við þurfum leigusamning", sagði bankinn, "en ég er með svona blað frá Skattverket, sem er næstum það sama", sagði ég. "Við verðum að fá staðfestingu frá skólanum", sagði bankinn, "en ég er með eitthvað svona stúdentakort, getið þið ekki bara tekið það gilt", sagði ég. Það virkar ágætlega að þykjast vera svolítið treg að fatta (og treg að fara).



***Póllandsmyndir á facebook***

föstudagur, mars 28, 2008

Dagur 22

Sumir segja að maður eigi ekki að velja uppáhaldsbók eða höfund til að skrifa lokaritgerð um, því að maður endi á því að fá ógeð á efninu. Í þetta skipti ákvað ég að hlusta ekkert á slíkt tal og velja eina af mínum uppáhaldsskáldkonum.
Af því sem ég hef séð á alnetinu hefur önnur bókanna sem ég ætla að greina alls ekki hlotið almannahylli.
Sumir eru á þeirri skoðun að bókina eigi frekar að lesa eins og ljóð en skáldsögu, þ.e. einbeita sér að tungumálinu en ekki spá of mikið í sjálfri formgerðinni. Það er í sjálfu sér gott og blessað, en svo eru þeir sem segja að það sé enginn söguþráður, að bókin sé of flókin. Ég sé þessa lesendur grýta bókinni óþolinmóðir í næsta horn og bölva höfundinum. "Hrumphf!"
Sjálf verð ég aftur á móti skotnari og skotnari í þessari bók með hverjum deginum, textinn er eins og völundarhús með leynidyrum og ormagöngum, og býður upp á sífellt fleiri túlkunarmöguleika.
Hvernig gengur ritgerðin segirðu? Tja...
Núna er ég á því stigi að þegar ég fer að sofa neitar hausinn á mér að sofna. Hver ógleymanlega snilldin á eftir annari lýstur upp í huga mér eins og ljósið af vita á óveðursnóttu, þangað til ég sofna. En það er einmitt málið með ógleymanlegar snilldir að daginn eftir eru þær gleymdar. Þess vegna spratt ég á fætur um daginn og hálfsofandi klóraði á blað break through-ið.
Morguninn eftir settist ég svo niður með kaffibollann til að reyna að þýða brjálæðingslegt párið:
reality" vs. cyber "reality" ---valdity of the narrative---complete eradication of bounderies --- shift in the narration and thus gendered---dissolving binary structures to--- alter ego, thereby underlining the medium itself!!!!!---.

Jahá. Ef einhver hefur hugmynd um hvað þetta þýðir....

sunnudagur, mars 23, 2008

(Páska)Dagur 16





Páskadagur: Ekkert egg, ekkert lamb, rien de rien, en góður daginn engu að síður. Vorið hætti við að koma, og í gær var ískalt, svo kalt að manni verkjaði í fingurna og tærnar þegar maður var kominn inn og byrjaður að þiðna. Í sólinni pakkaði ég mér í risaúlpuna mína, vettlinga, sjal og húfu og fór í langan göngutúr í skóginum með ipodinn minn. Það sem maður gerir í staðinn fyrir að skrifa.
Meðfylgjandi er mynd af sænsku páskagóðgæti sem lítur út eins og kúkur í boxi.

laugardagur, mars 22, 2008

Dagur 15

Sól og smá snjór í Svíþjóðinni.
Eins gott að ég fór í talkennsku og eyddi heilum vetri í að læra að segja S, annars hefði þessi setning verið pinsam.


logo
Hvem er du i Mummidalen?

Mitt resultat:
Mummitrollet
Du er Mummitrollet! Du er veldig nysgjerrig. Du får ofte nye venner og drar gjerne ut på eventyr.
Ta denne quizen på Start.no

Blog Archive