Stundum er gaman að vera soldið ruglaður og bara dansa eða eitthvað og stundum

gerast kyssilegir hlutir sem líklegast myndu ekki gerast edrú (hvort sem það er af hinu góða eða vonda).
En það geta verið alls konar ástæður fyrir því að sleppa því að drekka:
Sumir fara á herfilega andlega bömmersþynnku (mín ástæða), sumir bara þola líkamlega séð ekki áfengi og aðrir slasa sig, sumir gera bjánalega hluti (og þá meina ég ekki asnalega en svolítið fyndna hluti heldur vonda úps særði einhvern hluti) og þar fram eftir götunum.
En málið er
málið er
að það getur verið svo mikið bögg að sleppa því.
Mér finnst asnalegt þegar fólk getur ekki látið þann sem vill ekki drekka í friði, "kommon, fáðu þér einn bjór. En ef ég splæsi?".
Og hvað er málið með "fáðu þér annan! já líst mér á stelpuna!"
Undarleg meðvirkni að þurfa að hvetja aðra til drykkju.
Það á að vera gaman að drekka. Ef að það er ekki gaman, ekki gera það.
Ef að þú manst ekki afhverju þú ert að drekka, hættu því.
5 comments:
Á endanum gefast alkarnir upp á meðvirkininni og minnka samskipti við þá sem hætta á milli kl 1600 á föstudögum og langt fram á mánudag. Halda að maður sé eh leiðinlegri. Mæli samt með þessu líferni mínus vín!
http://www.flashasylum.com/db/files/Comics/kbeer0001.jpg
ohh asna drasl.. linkurinn hverfur á bakvið.
Prufa þetta: www.flashasylum.com/db/files/Comics/kbeer0001.jpg
Ég er að drekka til að gleyma..en það er bannað að slefa og maður verður að halda þokkanum...
HAHAHAHAHA!!
Já Lára, þú ert þokkafull eins og gazella, eins og þokkafulla myndin af þér á klósettinu sem birtist á alnetinu um daginn sannaði...
Sendu inn athugasemd