sunnudagur, desember 03, 2006

í hlírabol, langermabol, peysu og lopapeysu lá ég undir flísteppi, ullarteppi og dúnsæng og skalf þannig að rúmið hristist allt. Varirnar bláar og ég var hrædd um að tennurnar myndu brotna því að þær glömruðu svo mikið. Foreldrarnir í útlöndum, Slaugurinn í Edinborg - Ég leit á kisu og sagði: "þú verður eina vitnið að dauða mínum". Hún svaraði: "mjá" og skallaði mig. En svo dó ég ekki.

4 comments:

a.tinstar sagði...

hvameinaru? var þér kaldara en mér? það getur ekki verið....snjóbert lamdi mig ítrekað í hausinn með hringlunni sinni.....he's so musical....life's a musical!!!!!!!

l.g. sagði...

Verður marr löggild lesbía ef marr á kisu?

sibba sagði...

ógeðslega fyndið-ég hló hátt. en ég er fegin samt að þú hafir ekki dáið!

Hlunkbert sagði...

Mér fannst þetta ekki skemmtilegt, sjaldan verið jafn viss um að þetta væri mitt síðasta...sérstaklega þegar ég fékk sinadrátt í hálsinn og var viss um að ég væri með heilahimnubólgu (5-15 % verða fyrir varanlegum skaða eða deyja).

Blog Archive