laugardagur, júlí 29, 2006

svona til að líta á björtu hliðarnar...


...það er ekki oft sem maður fær 27 hringingum ekki svarað á símann sinn...

miðvikudagur, júlí 26, 2006

Fallegri mynd af mér

þriðjudagur, júlí 25, 2006

Þessi mynd átti náttúrulega að fylgja með í gær en í dag er annar í mánudegi og hún á jafn vel við.

mánudagur, júlí 24, 2006

Eins og Billie segir:

I've got those Monday blues
straight through Sunday blues.

fimmtudagur, júlí 20, 2006

Depill


Ég er ekki viss hvaðan úr fortíðinni ég man eftir þessari bók, kannski átti ég hana þegar ég var lítil, kannski las ég hana fyrir börnin sem ég passaði. Það skiptir í raun ekki máli.
Kanínan Depill er leiður. Hann er öðruvísi en mamma sín og systkyni, þau eru alhvít en hann er með brúna bletti á feldinum sínum. Hann stingur af þegar fjölskyldan hans fer í lautarferð en uppgötvar svo að hann er rammvilltur. Hann finnur svo aðrar kanínur með brúna bletti, og þær fara með hann í kanínuholuna sína þar sem blettóttar og hvítar kanínur búa í sátt og samlyndi.
Ég ætla ekki að túlka söguna þannig að ég sé Depill og hélt að ég væri ein í heiminum en fann svo hinar samkó kanínurnar og bla. Nei.
Sagan snýst að mínu mati um það hvernig umhverfið skilgreinir mann. Depill var í raun ekki afbrigðilegur, hann var bara skilgreindur sem frávik vegna þess að hinar kanínurnar voru ekki eins og hann. Að sama skapi er ég skemmtileg í einum hópi, en leiðileg í öðrum, passa inn sumstaðar en alls ekki annars staðar. Það gerir mig samt ekkert sérstaka, allir eru einhvern tímann í því hlutverki að vera öðruvísi, hvort sem það er á vinnustaðnum, innan fjölskyldunnar, í skólanum eða vinahópnum.
Við erum öll Depill einhvern tímann, höldum að við séum voða sérstök, en erum það ekki. Það er spurning um hvort er hræðilegra, að vera alveg eins og fólk er flest eða frík?

föstudagur, júlí 07, 2006

Daglegt líf

Ferðamaður: Hello I want to go tomorrow to Poorsmork and then walk to Landmannalágur.
Þögn
Ég: Yes (var þetta spurning?)
Ferðamaður: When does the bus leave?
Ég: It leaves 8:30 from the BSI bus station.
Ferðamaður: And there’s a free bus going from here ?
Ég: There’s a shuttlebus that leaves every morning from the parking lot, but it’s not free.
Ferðamaður: But it says here it’s free! (Bendir máli sínu til staðfestingar á Loneley Planet Guide frá 1993)
Ég: (með frosið bros) Well not anymore...
Ferðamaður 2: Can you change me into fifty?
(kassi: cha ching!)
Ferðamaður: I stay in Poorsmork five days, I keep my bags here.
Ég: We charge 300 per day for luggage storage.
Ferðamaður: But it says here it’s free! (aftur Lonely Planet anno ’93)
Ég: ...sorry?
Ferðamaður: Do you know if the bus stops in Pingvelly ?
Ég: No, it’s not really on the way, see (bendi á kort sem sýnir rútuleiðina).
Ferðamaður: But I can take another bus ?
Ég: Uhm there’s no bus that goes there directly, you would have to go on a planned tour.
Ferðamaður 3: Can I drink the water from the toilet ?
Ég: No, not from the toilet. (flissa eins og bjáni) But you can drink it from the faucet. And don’t drink the hot water !
Ferðamaður: But I don’t want to go on a tour ! (hljómar nákvæmlega eins og fimm ára krakki sem vill ekki fara að sofa)
Ferðamaður 5: Where empty chemi ?
Ég: You go here to empty your chemical toilet, (sýni honum á korti) it takes five minutes to drive there.
Ferðamaður 5: I can not empty in toilet here ?
Ég: NO ! Huge NO ! A world of NOs!
Ferðamannahjón: Hello.
Ég: Góðan daginn!
Ferðamannahjón: We wants to go handicraft museum.
Ég: Uh, yes...I’m not sure I know of any.
Ferðamannahjón: Yes there is.
Ég: Is it in Reykjavík?
Ferðamannahjón: (Tala sín á milli í 10 mínútur, blokka í leiðinni aðgang annars fólks til mín) Not sure.
Ég: Oookay, where did you hear about it? Was it in any of the brochures here?
Ferðamannahjón: (sama og áðan) Not sure.
Ég: (hef meðan á þessu stendur leitað ítarlega á netinu og hringt á fimm staði og
finn EKKERT) I´m sorry, but I can’t really find it.
Ferðamannahjón: (horfa á mig með vonbrigða- og vandlætingar svip. Hægt: )
H-a-n-d-i-c-r-a-f-t m-u-s-e-u-m.

fimmtudagur, júlí 06, 2006

Goddamn..

miðvikudagur, júlí 05, 2006

áfengi

Ég er ekki á móti drykkju.
Stundum er gaman að vera soldið ruglaður og bara dansa eða eitthvað og stundum
gerast kyssilegir hlutir sem líklegast myndu ekki gerast edrú (hvort sem það er af hinu góða eða vonda).
En það geta verið alls konar ástæður fyrir því að sleppa því að drekka:
Sumir fara á herfilega andlega bömmersþynnku (mín ástæða), sumir bara þola líkamlega séð ekki áfengi og aðrir slasa sig, sumir gera bjánalega hluti (og þá meina ég ekki asnalega en svolítið fyndna hluti heldur vonda úps særði einhvern hluti) og þar fram eftir götunum.
En málið er
málið er
að það getur verið svo mikið bögg að sleppa því.
Mér finnst asnalegt þegar fólk getur ekki látið þann sem vill ekki drekka í friði, "kommon, fáðu þér einn bjór. En ef ég splæsi?".
Og hvað er málið með "fáðu þér annan! já líst mér á stelpuna!"
Undarleg meðvirkni að þurfa að hvetja aðra til drykkju.
Það á að vera gaman að drekka. Ef að það er ekki gaman, ekki gera það.
Ef að þú manst ekki afhverju þú ert að drekka, hættu því.

mánudagur, júlí 03, 2006

að blogga...

Eða ekki blogga, þar er efinn.









Svona líður mér oft.

Song for a lady

On the day of breasts and small hips
the window pocked with bad rain,
rain coming in like a minister,
we coupled, so sane and insane.
We lay like spoons while the sinister
rain dropped like flies on our lips
and our glad eyes and our small hips.
"The room is so cold with rain," you said
and you, feminine you, with your flower
said novenas to my ankles and elbows.
You are a national product and power.
Oh my swan, my drudge, my dear wooly rose,
even a notary would notarize our bed
as you knead me and I rise like bread.

Anne Sexton

Blog Archive