mánudagur, desember 10, 2007

5. desember

Í dagatalinu í dag voru þrjú einhverskonar kvikindi. Ekki hugmynd hvað þetta á að vera. Á jólamarkaðnum í Gamla stan gerði ég heiðarlega tilraun til að kyssa undir mistilteini, en mér og kirsuberjaprinsinum fannst það eitthvað svo óeðlilegt og ógeðfellt að ekkert varð úr því.
Í wikipedia stendur að mistilteinn sé sníkjuplanta sem lifir á trjám og getur í miklu magni drepið tréið. Samkvæmt mistilteinsreglum þurfa tvær manneskjur sem mætast undir mistilteini að kyssast. Ég hengdi upp mistiltein í eldhúsinu og bíð í ofvæni eftir að ástin blómstri/allt leysist upp í orgíu.

1 comments:

Lára sagði...

hahaha, ég skal sko smella einum hátíðarnarkossi á þig ef við hittumst yfir hátíðarnar...góða ferð heim

Blog Archive