föstudagur, desember 14, 2007

9. desember

Vasaljós. Whatever. Ég er hætt að láta jóladagatalið ráða lífi mínu.
Drakk glögg með íslenskum námsmönnum í Stokkó og nartaði í hangikjöt. Á mínu heimili hefur hangikjöt ekki verið á borðum á jólunum sjálfum en í laufabrauðinu með stórfjölskyldunni eru yfirleitt fimm ólík afbrigði af því. Jú, ég finn mun á birkireyktu og öðruvísi reyktu og sauð og ær, en fyrir mér kemst hangikjöt ekki með tærnar þar sem saltkjöt er með hælana. Glögg aftur á móti er eitt af því yndislega við aðventuna, sérstaklega með piparkökum, en á hverju ári fæ ég sterkari og sterkari löngun til að smakka eggnog. Læt verða af því um þessi jól.

3 comments:

a.tinstar sagði...

hey! egg noggur hjá mér á þriðjudaginn 18!er m saumó!

Ofurrauðkan sagði...

en þú heppin

a.tinstar sagði...

já komdu svo bara í egg noggg og cheese balls leyfar, trúðu mér það verður nóg....

Blog Archive