Svo mælti Lacan, því hið Cartesíska "ég hugsa, því er ég" var bara of leim fyrir 20. öldina.
Ritgerðarskrifin hafa gengið frekar dræmt þar sem ég fékk verkefni aftur í hausinn sem ég skilaði fyrir löngu síðan. Þar átti ég að greina leikrit Söruh Kane útfrá kenningum Barböru Freedman og Jacqueline Rose. Ég reyndi mitt besta en gafst upp á endnum og skilaði inn allt of stuttum texta þar sem ég útskýrði að ég gæti ekki greint leikritið þar sem það væri varla leikrit, og kenningarnar væru óskiljanlegar með öllu. Hefði átt að vita að hreinskilni er ekki besta leiðin.
Þar sem að fjárhagurinn minn veltur á þessu eina, bjánalega 700 blaðsíðna verkefni hætti ég mér aftur inn í frumskóg sálgreiningarinnar. Ég valdi annað verk eftir Kane sem var mun viðráðanlegra og þóttist eins og ég skildi eitthvað í þessum kenningum um sjálfið og gaze-ið og lúkkið og hvað þetta bull nú allt heitir. Freud minn rass!
Í örvæntingafullum bókaveiðum rambaði ég svo inn á Konunglega bókasafnið. Þar er heragi og þögn, og til að kóróna allt saman skópússivél! Nú gæti einhver kjáni spurt hversvegna ég læri ekki heima hjá mér, en það heppnaðist síðast 2001. Það er allt of margt heima hjá mér sem er meira spennandi en að lesa, eins og að eyða einum og hálfum tíma í að búa til hádegismat, ryksuga, endurhorfa á ANTM og lesa svo recap, skipuleggja allt skóladótið mitt og vera þá orðin svo þreytt að ég verð að leggja mig.
Eini gallinn við hið Konunglega er loftið, sem er blýþungt. Judith Butler heldur þvi fram að sársaukafull fjarlægð frá daglegu máli og viðteknum málfræðireglum sé hluti af fræðimennsku, ég held því fram að vera tíu mínútum frá yfirliði sé hverri ritgerð hollt.
Ritgerðin lufsast áfram, ég er byrjuð að lesa yfir bækurnar sem ég ætla að greina og pikka út hvar lykilhugtökin er að finna.
Kalt mat, skilaði inn leiðindaverkefni dauðans og var boðin í veganmat: Ágætis dagur.
2 comments:
"Freud minn rass"
"Ég er mjög anal á þögn"
Já elskan mín eins og freudmyndi segja þá ert þú klárlega föst á analstiginu og ert þess vegna svona neurotic. Segðu bara skilið við hið symbólíska og komdu þer aftur í tengsl við choruna. Það lagar allt.
...fokkíng freud...ég hafna social cohesion...
Sendu inn athugasemd