B. Hakama og spúsi eignuðust í gær lítinn púka og heilsast móður og barni vel eftir því sem ég best veit. Ef heimþráin var mikil fyrir þá tekur hún út yfir allan þjófabálk núna.Þessi dagur byrjaði með því að ég hrökk upp við einhvern hávaða og vissi ekki hvar í veröldinni ég var. Hávaðinn sem vakti mig voru frændsystkyni mín í ramma að detta af veggnum. Ég sofnaði ekki uppúr því og ákvað að fara á fætur, hress eftir fjögurra tíma svefn og eilítið timbruð. Ég trúi á forlög.
Bróðurpartinum úr deginum eyddi ég svo í að leita upp heimildir á netinu fyrir Ritgerðina og undirbúa kennslu kvöldsins. Ég hafði minni en enga löngun til að fara að kenna, dauðþreytt og andlaus á alla vegu, en svo endaðu tímarnir á að vera frábærir. Allir rosa jákvæðir og glaðir með verkefnin sem ég hafði föndrað handa þeim, sem gengu út á að láta þau blaðra sem mest. Færri en venjulega í byrjendahópnum og æðisleg stemming. Píndi þau til að taka undir í "Kalla litla könguló" og gera hreyfingarnar með, og spurði svo "vad säger ni, känner ni er masokistiska i dag?" og þegar þau svöruðu játandi lét ég þau lesa og leiðrétti miskunnarlaust.
Nú er ANTM að dánlódast og ég vona að ég lognist ekki út af áður en það klárast.
Ps. Sá íkorna í dag.
2 comments:
Er að dunda mér við að lesa bloggið þitt, auðvelt að villast af leið þegar maður á að vera að skrifa ritgerðir ha?! Annars er planið að sytja yfir ritgerðarskriftum alla helgina, langt síðan ég hef skoðað blogg sem ég nenni að lesa svo þú hlýtur að teljast góður penni ;) Jæja back to reality, góðar stundir. Gulla
Sendu inn athugasemd